Það þekkja þig fleiri

,,Ég þarf ekkert merki eða lógó til að slá í gegn.” Kannski. En það hjálpar, engin spurning. Lógóið er vörumerkið þitt, andlitið þitt sagði einhver mjög snjall! Hvers vegna heldur þú að stóru stelpurnar og strákarnir verji bæði miklum tíma og peningum í að þróa sín vörumerki? Heldur þú virkilega að þau væru að hafa fyrir því ef lógó skipti ekki meiriháttar máli? Við höldum ekki.

Við erum alltaf að hanna lógó og heildarútlit fyrir fyrirtæki. Talaðu við okkur eða sláðu á þráðinn og sjáðu hvað við bjóðum. Við bjóðum hönnunarpakka sem hæfa öllum áætlunum. Einfalt og árangursríkt!?

Lógó andlitslyfting

Við mælum ekkert endilega með því að þú skiljir við gamla lógóið og takir nýtt og ungt lógó upp á arminn. Það getur kostað sitt að kynna nýtt lógó til sögunnar. Ef gamla lógóið er farið að láta á sjá, er ekki í takt við starfssemina eða bara eitthvað krumpað talaðu við okkur. Kannski þarf ekki annað en að tosa aðeins upp þarna, lyfta þessu örlítið hærra, slétta línurnar dálítið meira…og gjörðu svo vel! Ef þetta er ekki að gera sig þá græjum við algerlega nýtt lógó og nýjan búning. Hönnun á því kostar aðeins meira hjá okkur og þú manst að gera ráð fyrir að kynna nýtt lógó til sögunnar! Virkt markaðsstarf skilar árangri eða þeir ,,fiska sem róa"! Það var einhver annar snillingur sem sagði þetta...

Fyrsta skref - HEILAROK!

Til að hanna merki, eða lógó eins og við segjum í daglegu tali, fyrir þig myndum við gjarnan vilja komast inn í hausinn á þér. Við viljum finna út hvað þú fílar og hvað þú fílar alls ekki (hafðu ekki áhyggjur…við erum ýmsu vön!). Uppáhaldslitir? Litir sem þú þolir ekki þó tengdó fjasi um hvað þeir séu flottir? Hvernig viltu hafa ímyndina þína? Á hún að vera íhaldssöm, nútímaleg, fönkí eða vingjarnleg? Myndir þú kjósa lógó sem byggir á leturgerð frekar en lógó sem byggir á mynd? Um leið og við skiljum þig vinnum við að nokkrum mismunandi hugmyndum. Því meiri tíma sem við verjum í verkið því fleiri hugmyndir. Við vinnum alltaf hratt og örugglega en þetta hangir allt saman á veskinu þínu!

Annað skref - FÍNPÚSSAÐU!

Þér getur fundist ein hugmyndanna – við tölum oftar um ,,concept” eða konsept – nákvæmlega málið fyrir þig. Frábært! Kannski sérð þú eitthvað sem þér líkar í hugmyndavinnunni frá okkur en svo þarf aðeins að hækka þarna, lækka hinum megin, lýsa rauða litinn og teygja aðeins á þessu! Ekkert mál. Þú getur treyst því að við leggjum alla okkar sérfræðiþekkingu í að hanna fyrir þig lógó sem þú fílar í botn! Þú getur bókað að hönnuður hjá okkur er búinn að liggja yfir þessu, færa þetta aðeins upp, hitt aðeins neðar og eitthvað annað fyrir hornið! Á þessu stigi mælum við með að það sé ekki breytt breytinganna vegna. Vertu viss um að það sé verulega góð ástæða fyrir breytingunum. Við gerum auðvitað allar breytingar fyrir þig með glöðu geði. Þú verður bara að vera með á hreinu að breytingarnar kosta þig peninga.

Þriðja skref - FÍLAÐU ÞAÐ!

Nýja lógóið þitt verður á öllu, bókstaflega ÖLLU. Það er mjög mikilvægt að þú fílir það - í tætlur - eins og einhver sagði einhvern tímann! Um leið og þú er handviss um að þetta lógó ætlir þú að nota a.m.k. næstu hundrað árin eða svo þá græjum við það fyrir þig á tölvutæku. Lógóið þitt á að vera á bókstaflega öllu sem þú sendir frá þér. Því meira og betur sem þú notar það því fleiri sjá það. Því fleiri sem sjá lógóið því betra. Þá eru fleiri líklegri til að muna eftir lógóinu þínu. Það munu fleiri þekkja þig! Mjög mikilvægt. Ef þú ert ekki viss um hvar þú vilt setja þitt lógó, röltu inn á skyndibitastað og skoðaðu! Lógóið er á öllu, alls staðar!

Fjórða skref - BÚNINGURINN SKIPTIR VÍST MÁLI!

Lógóið á allt. Við erum sammála um það. Ef þetta væri nú svo einfalt. Allt efni sem þú lætur frá þér fara verður að líta eins út. Já, við erum líka stílistar og skrambi góð í því! Ef þú ætlar að nota peninginn þinn báðum megin þá skiptir máli að búningurinn þinn sé alltaf eins. Ef bréfsefnið þitt, reikningarnir, nafnspjöldin, dreifimiðarnir og bæklingarnir eru í sama búningi er stíllinn fagmannlegur og traustvekjandi. Það skiptir máli í markaðsumhverfi dagsins í dag!