Orð selja

Þú gætir verið að horfa á augnlokin á þér og morgunkaffibollinn enn órafjarri en samt eru nokkrar útvarpsauglýsingar búnar að hlýja hlustunum á þér! Svo byrjar dagurinn og áður en langt er um liðið hafa tugir, ef ekki hundruðir skilaboða birst þér í sjónvarpi, útvarpi, auglýsingaskiltum, bílum af öllum stærðum og gerðum að ógleymdum dagblöðunum. Allir eru að keppa um athygli.

Hversu mörg þessara skilaboða manstu? Ef þú ert ekki með minni á við fíl eða fékkst viðurnefnið ,,límheili" í skóla þá er líklegt að þú munir eftir færri en tíu skilaboðum...tékkaðu bara á þessu, gerðu óformlega könnun. Ef þú kemst upp í 18 skilaboð þá ertu snilli!

Ef markmiðið er að afla nýrra viðskiptavina verður þú að ná athygli þeirra. Þú gerir það með því að vera öðruvísi og betri en keppinautarnir! Hér komum við til sögunnar. Við lumum alltaf á góðum hugmyndum um hvernig megi klófesta nýja viðskiptavini og meiri viðskipti!

Ertu orðlaus? Hér eru nokkur sem gætu komið þér af stað:

Algjörlega Kynna Undravert Leyfi Ekta Tilboð Betra Stórt Byltingarkennt Fullkominn Afhent Beint Afsláttur Auðvelt Hágæða Trygging Spennandi Einstakt Sérfræðingur Frægð Ókeypis Frítt Gjöf Langbest Ábyrgð Hvernig Risastórt Strax Endurbætt Komdu Stærsta Nýjasta Lífstíð Takmarkað Ást Lægst Töfrar Kraftaverk Nýtt Núna Magnað Skynsamlegt Fagmannlegt Hagnaður Gæði Snöggt Lækkað Sjálfvirkt Leyndarmál Sérstakt Yfirburðir Velgengni Öðruvísi Strax Fágætt Græða Sigurvegari Þú