Algengar spurningar

Nebbs, við erum ekki göldrótt þótt sum okkar séu dálítið hokin af reynslu. Við ákváðum samt að þýða nokkrar spurningar sem bresku samstarfsaðilarnir okkar hafa fengið frá sínum viðskiptavinum, bæði til gagns og gamans...við látum svörin stundum fylgja með...

Hvernig panta ég?
Það er svona einfalt...
Ódýr gæðaprentun, gengur það upp?
Já. Við erum öðruvísi. Viðskiptahugmyndin okkar byggir á því að það sé einfalt fyrir þig að kaupa hönnun og prentun og við sjáum svo um að vinna þetta fyrir þig á sem hagkvæmastan hátt. Þú getur treyst því.
Get ég gert verðsamanburð?
Það er ekki hægt að bera saman epli og hvali.
Hversu fljótt get ég fengið vöruna mína?
Hvenær þarftu vöruna þína? Þú veist að það kostar meira að fara fremst í röðina!
Passar peysan við þessa skó?
Já. Þú lítur hrikalega vel út.
Getið þið prentað í nákvæmlega sömu litum og það sem ég lét prenta síðast?
Við bjóðum þér í kringum 90% öryggi í litanákvæmni. Það þýðir að það verða einhver frávik – það sem við í prentbransanum köllum eðlileg frávik – en við erum líka alveg með það á hreinu að þú verður mun ánægðari með reikninginn frá okkur þegar þar að kemur!
Getið þið hjálpað mér með hönnun?
Alveg málið. Við getum séð um þetta fyrir þig frá A-Ö. Hugmyndavinnu, textagerð, útlit, myndir, grafík - gerir daginn skemmtilegri!
Get ég séð um mína hönnun?
Auðvitað. Kynntu þér leiðbeiningabæklinginn okkar áður en þú byrjar því við gerum þetta ekki alveg eins og aðrir prentarar.
Hvað á ég að drekka með góðum mygluosti?
Íslenskt vatn er besta vatn í heimi. Sætt púrtvín vermir annað sæti hjá okkur.
Hvernig greiðslufyrirkomulag er hjá ykkur?
Debitkort, kreditkort, ávísanir og seðlar. Við setjum prentverkið þitt á vélarnar hjá okkur um leið og búið er að greiða. Það er líka hægt að semja við okkur sérstaklega um annað greiðslufyrirkomulag. Við erum svo sveigjanleg!