Skjóttu keppinautunum ref fyrir rass
Smábæklingar geta breytt miklu fyrir fyrirtækið þitt. Áður en þú byrjar veltu þá fyrir þér svörunum við spurningunum hér að neðan. Þetta gæti orðið að þriggja handklæða máli fyrir keppinautnana þína.
Hver er tilgangurinn með smábæklingnum?
Ætlar þú að dreifa bæklingnum eða er hann hluti af stærri kynningarpakka? Er þetta kannski kynningarefni fyrir sýningu? Hvernig ætlar þú að dreifa smábæklingnum ?
Við hverja ertu að tala?
Núverandi viðskiptavini? Alla núverandi viðskiptavini eða einhvern hluta þeirra? Hverjir eru lesendurnir – framkvæmdastjórar, skapandi fólk eða tæknimenn?
Hver eða hverjir ráða?
Ef þú ert ekki aðal þá borgar sig að fá þá sem ráða til að koma að þessu á fyrstu stigunum. Haltu hugmyndafund með liðinu - þetta verður annað hvort þytur eða hávaðarok!
Að reka fyrirtæki án þess auglýsa er eins og að blikka stelpu í myrkri. Þú veist hvað þú ert að gera en alveg örugglega enginn annar.
Hvað viltu verja miklum pening í þetta verkefni?
Vertu með þetta á hreinu strax í upphafi. Við einfaldlega bjóðum þér lausnir sem hæfa þinni áætlun. Það sparar öllum tíma og þú notar peninginn báðum megin!
Hver skrifar textann?
Þú. Gott mál. Skrifaðu textann. Skerðu hann svo niður um helming. Ef þú vilt aðstoð við fínpússningu á texta þá græjum við það fyrir þig.
Hvað á að vera með mikið af myndum?
Áttu myndirnar til eða þarftu að láta taka myndir? Getur þú notað myndir úr myndabönkum? Hversu margar myndir þarftu? Ein mynd getur verið nóg en svo þarftu kannski fjórar eða níu - þetta fer dálítið eftir því um hvað bæklingurinn þinn snýst!
Hver hannar?
Það er eitt að elda kvöldmat fyrir fjölskylduna og annað að flauta til 500 manna veislu. Ef þú hefur fengist eitthvað við grafíska hönnun getur þú gælt við að sjá um hönnunina. Þú gerir það á eigin ábyrgð. Það er eitt að kunna á forritin - en allt annað að vera hönnuður. Þú gætir staðið uppi með smábækling sem gerir meiri skaða en þig órar fyrir. Láttu okkar fagfólk um þetta ef þú ert ekki útlærður grafískur hönnuður!
Hvað eru keppinautarnir að gera?
Ef þú veist það ekki nú þegar þá er eins gott fyrir þig að bretta upp ermarnar. Nældu þér í bæklinga eða annað kynningar- og auglýsingaefni frá þeim. Þetta getur hjálpað þér við að ákveða hver þín skilaboð eiga að vera. Þú vilt líka líta miklu betur út!
Magn upplýsinga í texta?
Þetta er ekki spurning um að nota allt plássið heldur hvernig plássið er notað. Hvaða upplýsingar skipta markhópinn þinn raunverulegu máli og hvers vegna? Góðar myndir geta oft komið í stað mikilla upplýsinga í texta! Mundu að fólk hefur ekki mikinn tíma aflögu, berðu virðingu fyrir tíma annarra!
Hver les próförk?
Enginn sem hefur komið að þessu verki á framleiðslustigi. Sá sem prófarkales verður að vera að lesa textann í fyrsta skipti. Athugasemdir frá prófarkalesara eru hverrar krónu virði!

