Það þekkja þig fleiri

Viltu slá í gegn?

Lógóið er vörumerkið þitt, andlitið þitt sagði einhver mjög snjall! Treystu okkur, þetta skiptir miklu meira máli en stærð. Hvers vegna ætti fólk að skipta við þig ef það veit ekki að þú ert betri og eða öðruvísi en keppinautarnir?

Vörumerkið þitt er andlit fyrirtækisins.

Þú þarft ekki að ræna banka eða veðsetja allt til himna til að hafa þessi mál í góðu lagi. Hvers vegna heldur þú að stóru stelpurnar og strákarnir verji tíma og peningum í að þróa sín vörumerki? Heldur þú að þau væru að hafa fyrir því ef lógó skiptu ekki meiriháttar máli? Við höldum ekki. Hvaða skilaboðum vilt þú koma á framfæri og hvernig viltu að fólk meðtaki þessi skilaboð? Kjarninn. Einfalt.

Lógóið þitt er þungamiðjan. Berðu það sama við lógó keppinautanna. Er það betra eða að minnsta kosti mun eftirtektarverðara? Ef ekki mælum við að þú skoðir andlitslyftingu á lógóinu þínu með okkur. Án lógós - eða það sem verra er; með illa hannað lógó - getur fyrirtækið þitt litið út fyrir að vera ófagmannlegt og ótrúverðugt. ,,Ég þarf ekkert merki eða lógó til að slá í gegn.” Kannski. En það hjálpar, engin spurning. Vel hannað lógó getur fært þér viðskiptavini og viðskiptatryggð á silfurfati.

Við erum alltaf að hanna lógó og heildarútlit fyrir fyrirtæki. Talaðu við okkur eða sláðu á þráðinn og sjáðu hvað við bjóðum. Við skorum á þig!

Við erum sammála um að lógóið skiptir miklu máli, ekki satt? Ef allt kynningar- og auglýsingaefni er í takt hjá þér er auðveldara fyrir fólk að þekkja þig! Við treystum þeim sem við könnumst við betur en þeim sem við þekkjum ekki. Þetta traust getur haft mjög jákvæð áhrif á sölu. Við þurfum ekkert að segja þér hvaða áhrif aukin sala hefur á þig! Haltu góðum heildarsvip á búningnum. Við hjálpum þér við þetta!

Láttu nafnspjöldin þín vinna fyrir þig – ekki sulla bara á lógóinu þínu og símanúmerinu. Líttu á nafnspjaldið þitt sem ,,lítinn bækling" og svo getur þú líka notað eitthvað af þessum tíu leiðum hér að neðan.

Tíu leiðir til að nota nafnspjöldin betur!

  1. Notaðu spjaldið báðum megin.
  2. Settu götukort á það.
  3. Varpaðu fram spurningu sem aðeins þú getur svarað.
  4. Mynd af heimasíðunni, tölvupóstfang?
  5. Góðar ljósmyndir af vörum.
  6. Hvað hefur þú umfram keppinautana?
  7. Skildu eftir spjöld þar sem það er leyft eða fáðu leyfið!
  8. Settu þau á auglýsingatöflur, t.d. úti í búð!
  9. Stingdu þeim inn í tímarit þegar þú ert á biðstofum.
  10. Láttu fólk alltaf fá tvö í einu. Annað spjaldið er fyrir vin!