Prentsmiðjan Viðey og Prentun.com undirrita samstarfssamning

febrúar 2008

Prentsmiðjan Viðey í Kópavogi og Prentun.com hafa gert með sér samstarfssamning um sölu og þjónustu á prentun. Með samningnum geta viðskiptavinir Viðeyjar nýtt sér alla þá fjölbreytni í prentun og hönnun sem Prentun.com hefur á boðstólum.

„Þetta er mjög góður stuðningur við þann rekstur sem við erum með í dag og nú getum við boðið viðskiptavinum okkar betri þjónustu og verð af þeim fjölmörgu vöruflokkum sem Prentun.com býður upp á. Þetta eru staðlaðar útfærslur á flestum algengustu prentvörum, allt frá nafnspjöldum og bæklingum upp í glæsilegar kynningarmöppur“ segir Jóhann Hafnfjörð, framkvæmdastjóri Prentsmiðjunnar Viðeyjar um samninginn.

Prentun.com er í eigu Kvosar hf. sem er íslenskt fjárfestingarfélag í prentiðnaði með starfsemi á Íslandi, Bandaríkjunum og Austur-Evrópu. Prentun.com hóf starfsemi hér á landi á síðasta ári en starfsemin á Íslandi er byggð upp að fyrirmynd breska fyrirtækisins Printing.com sem m.a. var valið fyrirtæki ársins í Bretlandi árið 2006.

„Við bjóðum þjónustu grafískra hönnuða og söluráðgjafar okkar hjálpa viðskiptavinum að koma fyrirtæki sínu og skilaboðum á framfæri á einfaldan og árangursríkan hátt. Þá felst sérstaða okkar í því að geta sameinað mörg smærri prentverk í eitt stórt og boðið lægra verð fyrir vikið. Það er mjög ánægjulegt að fá Prentsmiðjuna Viðey til samstarfs því þannig þéttist það net fyrirtækja sem bjóða þjónustu okkar” segir Rafn Benedikt Rafnsson, framkvæmdastjóri Prentun.com.

Upplýsingar veita :
Rafn B. Rafnsson í síma 527 6500
Jóhann H. Rafnsson í síma 577 4646
Theodór M. Sigurjónsson 552 2930

Galdur til samstarfs við Prentun.com

febrúar 2008

Prentsmiðjan Galdur á Höfn í Hornafirði hefur gengið til samstarfs við Prentun.com og munu viðskiptavinir Galdurs í framtíðinni geta nýtt sér þá þjónustu og framleiðslu sem Prentun.com hefur á boðstólum.

„Við sjáum fram á að geta með samningum við Prentun.com bæði aukið þjónustuna við viðskiptavini okkar og einfaldað framleiðsluferlið hjá okkur.“ segir Heiðar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Galdurs sem þjónar bæði viðskiptavinum í heimahéraði og víða um land.

„Hjá Prentun.com starfa hönnuðir og ráðgjafar sem hafa fjölbreytta reynslu í prentiðnaði og markaðsmálum og geta ráðlagt viðskiptavinum okkar um það hvernig þeir geta á áhrifaríkan hátt komið vörum sínum og þjónustu á framfæri. Við sameinum mörg smærri prentverk í eitt stórt og getum þannig boðið lægra verð. Þjónustunet okkar þéttist jafnt og þétt eftir því sem fleiri samstarfsaðilar sem síðan selja sínum viðskiptavinum þjónustu okkar bætast í hópinn, ” segir Rafn Benedikt Rafnsson, framkvæmdastjóri Prentun.com.

Upplýsingar veita :
Rafn B. Rafnsson í síma 527 6500
Heiðar Sigurðsson í síma 478 2052

Víkurfréttir og Prentun.com undirrita samstarfssamning

nóvember 2007

Víkurfréttir og Prentun.com hafa undirritað samstarfssamning um sölu og þjónustu á prentun á Suðurnesjum undir nafni prentun.com. Forráðamenn fyrirtækjanna, Páll Ketilsson og Rafn B. Rafnsson undirrituðu samning þessa efnis nýlega.

Fyrirtækið printing.com var stofnað í Englandi 1998 en hefur nú sest að á Íslandi undir nafninu prentun.com (en eigandi þess er Kvos sem m.a. rekur Prensmiðjuna Odda). Printing.com hefur fengið fjölda verðlauna frá stofnun þess og var m.a. kosið „Fyrirtæki ársins“ í Bretlandi 2006. Markmið fyrirtækisins er að bjóða bestu mögulegu þjónustu á lágu verði. Prentverkið er síðan framleitt í stærstu og öflugustu prentsmiðju Íslands og þannig fá viðskiptavinir bestu verðin á markaðnum. „Hjá prentun.com er boðið upp á beinan aðgang að grafískum hönnuðum, markaðs- og söluráðgjöfum sem vinna að því að koma fyrirtæki þínu og skilaboðum á framfæri á einfaldan og árangursríkan hátt. Það er okkur mikið ánægjuefni að Víkurfréttir ehf. sem er mjög þekkt fyrirtæki á Suðurnesjum sé fyrsta fyrirtækið á Íslandi sem gerir samstarfssamning við prentun.com“ sagði Rafn.

Víkurfréttir ehf. sem fagna aldarfjórðungsafmæli sínu í janúarbyrjun 2008 hafa á undanförnum árum aukið þjónustu sína í hönnun, prentun og markaðsþjónustu en fyrirtækið hefur aðallega verið þekkt fyrir útgáfu samnefndra vikulegra bæjarblaða á Suðurnesjum annars vegar og svo í Hafnarfirði, Garðbæ og Álftanesi hins vegar. Þá hefur fyrirtækið rekið tvo vinsæla fréttavefi á netinu, www.vf.is og kylfingur.is auk annarrar starfsemi á sviði fjölmiðlunar. Með þessum samningi er VF að stíga ný skref í prentþjónustu. „Ég veit að reynsla okkar og þekking í hönnun og í sölu- og markaðsmálum hér á Suðurnesjum á eftir að reynast viðskiptavinum okkar vel sem vilja nota prentun.com,“ sagði Páll Ketilsson, framkvæmdastjóri Víkurfrétta ehf.

Suðurnesjamenn munu verða varir við þessa nýju þjónustu hjá Víkurfréttum á næstunni í öflugu markaðsstarfi.