Skilmálar um þjónustu
SKILMÁLAR um þjónustu prentun.com (PDC ehf.)
1. Söluaðilar
Sölustaðir prentun.com (PDC) geta verið í eigu PDC eða sjálfstæðra sérleyfishafa (hér eftir nefndir sameiginlega með PDC þar sem við á söluaðilar) sem eiga og reka endursölu með sérstöku sérleyfi PDC ehf. kt: 691205-0960, Ármúla 34, Reykjavík. Forsendur og skilmála leyfis er að finna hjá sérhverjum söluaðila eða á vefslóðinni www.prentun.com.
2. Verðbreytingar
Verð eru byggð á kostnaðarverði prentgripa á þeim tíma sem þau eru gefin upp. Verð geta breyst sökum breytinga á kostnaðarverði
3. Virðisaukaskattur
Verð er ávallt gefið upp án virðisaukaskatts. Á reikningi er virðisaukaskattur færður sér.
4. Forvinnsla
Aukavinna eða aukakostnaður sem fellur til ef í ljós kemur að frumgögn frá viðskiptavini eru ófullnægjandi til að ljúka verki er ekki innifalin í verði. Breytingar og viðbætur sem viðskiptavinur biður um í verkferlinu eru ekki innifaldar í verði.
5. Texti
Endursöluaðili áskilur sér rétt til að innheimta sérstaklega fyrir þann tíma sem fer í að lagfæra textaskjöl sem viðskiptavinur skilar inn til prentunar sem ekki eru skýr eða læsileg, sé þörf á slíkum lagfæringum.
6. Prófarkir
Rafræn próförk (soft proof) stendur viðskiptavinum til boða og er kostnaður vegna hennar innifalinn í verði. Fari viðskiptavinur fram á annars konar próförk greiðir hann fyrir það sérstaklega. Söluaðili er ekki ábyrgur fyrir þeim villum sem viðskiptavinur leiðréttir ekki í próförk. Vilji viðskiptavinur breyta stílsniði, leturgerð eða útliti eftir að hafa fengið próförk er innheimt fyrir þær breytingar sérstaklega. Fyrir hvers konar auka-prófarkir en þeim sem lýst er hér að ofan skal viðskiptavinur greiða fyrir sérstaklega.
7. Höfundarréttur
Nema um annað sé samið skriflega er höfundarréttur á hvers konar hugmyndavinnu, grafískri hönnun, og texta sem er unnið af söluaðila eign hans. Söluaðili er ekki bundinn af því að nota sama kynningarefni sem PDC notar. Söluaðili má nýta hvers konar prent og-eða myndefni hann hefur framleitt í auglýsinga-eða kynningarefni fyrir sjálfan sig eða PDC. Viðskiptavinur ber ábyrgð á því að afla allra tilskilinna leyfa til notkunar á ljósmyndum, grafískri hönnun, endurprentunar á listaverkum, texta eða öðru endurprentanlegu eða endurbirtanlegu efni og skal hafa aflað þeirra áður en hann felur söluaðila endurprentun eða endurbirtingu á slíku efni. Viðskiptavinur skal halda söluaðila, umboðsmönnum hans og öðrum fulltrúum skaðlausum vegna hvers konar krafna, málsókna, aðfarargerða, kostnaðar (þar með talinn hvers konar lögfræðikostnaður), vaxta, dráttarvaxta, taps, skaðabóta sem á þá kunna að falla á grundvelli kröfu þriðja manns vegna endurprentunar eða endurbirtingar sem brýtur í bága við höfundarrétt sérhvers þriðja manns eða ef um misnotkun á trúnaðarupplýsingum þriðja aðila er að ræða. Hið sama gildir um fjárkröfur sem söluaðili kann að vera dæmdur til þess að greiða á grundvelli brota gegn XXV. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Öll hönnun, texti, myndefni, grafísk hönnun, ljósmyndir, skýringarmyndir, teikningar, myndmerki (logo), kóðar og hvers konar efni og innihald heimasíðu sem er í eigu, er stjórnað eða starfrækt af PDC, PDC verðlisti og PDC markaðsefni, eru hugverkaréttindi PDC, og skulu öll slík hugverkaréttindi (þar með talinn höfundarréttur) vera eign PDC. Endurgerð slíks efnis er óheimil án skriflegs leyfis.
8. Merkingar prentverks
Samkvæmt lögum nr. 57/1956 skal sá er annast prentun geta nafn síns eða firma, prentstaðar og prentárs.(prentun.com/iceland)
9. Afhending
Seljandi ber ekki ábyrgð á seinkun afhendingar vegna ófullnægjandi frumgagna frá kaupanda/viðskiptavini eða breytinga á verkinu eftir að vinna við verkið er hafin.
10. Upplagsfrávik
Samkvæmt viðmiðunarskilmálum Samtaka iðnaðarins (SI) um afhendingu prentverks er seljanda skylt að afhenda fullt upplag og sjá um að það sé í samræmi við pantað upplag að svo miklu leyti sem unnt er. Kaupandi og seljandi verða að sætta sig við 10% frávik til eða frá. Nemi pantað upplag meira en 10.000 eintökum má slíkt frávik ekki vera meira en 5% af upplaginu. Um þetta vísast nánar til viðmiðunarskilmála Samtaka iðnaðarins um sölu og afhendingu prentverks.
11. Kröfur
Skrifleg tilkynning um skemmdir, seinkun á afhendingu eða ef hluti vöru hefur glatast í flutningi skal hafa borist söluaðila og flytjanda innnan þriggja virkra daga (sé vara ekki afhent skal tilkynning gerð innan 28 daga frá sendingu vörunnar) frá afhendingu söluaðila til flutningsaðila. Skrifleg krafa vegna ofangreindra atriða verður að hafa borist söluaðila og flytjanda innan sjö daga frá afhendingu (sé vara ekki afhend skal krafa gerð innan 42 daga frá sendingu.) Kröfur sem lúta að öðrum atriðum skulu vera skriflegar og verða að hafa borist söluaðila innan 28 daga frá afhendingu. Söluaðili ber ekki ábyrgð á neinni kröfu nema ofangreindra skilyrða hafi verið gætt nema: 1) Að ómögulegt hafi verið að fylgja skilyrðunum í því tilfelli 2) tilkynning (þar sem þörf var á slíku) hafi verið gefin og skrifleg krafa hafi verið gerð eins fljótt og auðið var. Í neytendakaupum, eins og þau eru skilgreind samkvæmt lögum nr. 48/2003, gilda ófrávíkjanleg ákvæði laganna.
12. Ábyrgð
Söluaðili ber ekki ábyrgð á því að verk sé seljanlegt, eða að það gagnist í tilteknum tilgangi nema um það sé sérstaklega samið skriflega. Söluaðili ber ekki ábyrgð á rekstrartapi viðskiptavinar vegna töfum á afhendingu í flutningi sem hann hefur ekki valdið. Söluaðili ber ekki ábyrgð á óbeinu, sérstöku, eða afleiddu tjóni svo sem fjárhagslegu tjóni, missi hagnaðar, skaðaðri viðskiptavild eða missi gagna. Enn fremur ber söluaðili ekki ábyrgð á öðru beinu eða óbeinu tjóni sem viðskiptavinur veldur þriðja aðila vegna viðskipta þeirra á milli. Hámarks skaðabætur sem söluaðila getur verið gert að greiða vegna bótakröfu sem á rætur að reka til verks eða pöntunar skulu takmarkast við kaupverð verksins. Í neytendakaupum, eins og þau eru skilgreind samkvæmt lögum nr. 48/2003, gilda ófrávíkjanleg ákvæði laganna.
13. Eignaréttur seljanda
Tillögur, skissur, teikningar, stýriforrit, umbrot, skeytingar, filmur, stansar, klisjur, myndamót, prentmót og prentplötur eru eign söluaðila. Viðskiptavinur getur ekki krafist þeirra nema um það sé samið sérstaklega skriflega.
14. Eignir viðskiptavinar
Frumgögn og önnur gögn til vinnslu eru eign viðskiptavinar og alfarið á ábyrgð hans á meðan á vinnslu stendur og þau eru í vörslum söluaðila. Viðskiptavinur ber því áhættuna af þessum gögnum og ætti því að sjá til þess að þau séu vátryggð eftir því sem þurfa þykir. Viðskiptavini ber að sækja verk innan tuttugu daga frá því að hann hefur hlotið tilkynningu um að verki sé lokið. Sé slíkt ekki gert getur söluaðili komið verki til geymslu og krafið viðskiptavin um kostnað vegna þessa (þar með talinn kostnað af vátryggingu) og/eða eyðilagt slíkt verk án þess að það hafi áhrif á greiðsluskyldu viðskiptavinar vegna verksins.
15. Efni sem viðskiptavinur leggur til
Söluaðila er heimilt að hafna efni frá viðskiptavini, t.d. pappír og prentplötum sem ekki stenst gæðakröfur PDC. Vilji viðskiptavinur láta reyna á hvort efni er nothæft greiðir hann sérstaklega fyrir það.
16. Greiðslur og innheimta
Vörureikning ber að greiða innan eindaga. Greiði viðskiptavinur ekki vörureikning innan tilskilins tíma skal gjaldfallin fjárhæð bera dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Viðskiptavinur skal enn fremur greiða allan þann kostnað sem af innheimtu vörureiknings leiðir.
17. Vanskil eða ógjaldfærni
Sé vörureikningur viðskiptavinar í vanskilum, sé fjárnám gert hjá viðskiptavini, kyrrsetning, eða ef krafa er gerð um að bú viðskiptavinar sé tekið til gjaldþrotaskipta, eða ef önnur atriði valda ógjaldfærni viðskiptavinur er söluaðila heimilt að rifta samningi við viðskiptavin og hætta að inna af hendi vinnslu verks samkvæmt samningnum og innheimta hlutfallslegan kostnað verks af viðskiptavini sem og allan annan kostnað vegna verksins, hvort sem því sé lokið eður ei.
18. Ólöglegt prentefni
Söluaðilum ber ekki skylda til að prenta nokkuð það efni fyrir viðskiptavin sem söluaðili telur að sé andstætt lögum og/eða velsæmi, eða ef birting slíks efnis er til fallið að leiða til bótaskyldu, eða ef slík birting brýtur gegn rétti þriðja manns.
19. Tímaritaútgáfa
Samningar vegna prentunar á tímaritum eru uppsegjanlegir skriflega með 13 vikna fyrirvara af hálfu söluaðila og viðskiptavini ef um er að ræða tímarit sem kemur út einu sinni í mánuði eða oftar. Útgáfu tímarita eða annars konar útgáfu sem kemur út annan hvern mánuð eða sjaldnar skal þó segja upp skriflega með 26 vikna fyrirvara. Söluaðili getur þó sagt upp slíkum samningi hafi skuld viðskiptavinar í vanskilum í meira en 7 daga.
20. Fjórlita prentun (CMYK)
PDC eða söluaðili ábyrgist að litagæði prentunar séu ávallt sem næst verður komist þeim lit er upphaflega má finna í þeim skjölum sem viðskiptavinur skilar inn til prentunar. PDC eða söluaðili getur hins vegar ekki ábyrgst að um nákvæmlega sama lit eða áferð verði að ræða á prentefni. Hér er átt við ljósmyndir, gagnsæi (transparent layers), próförk, rafræna grafíska útlitspróförk, áður prentað efni (hvar sem það kann að hafa verið prentað) og annað það efni sem viðskiptavinur skilar inn til prentunar í samræmi við prentpöntun.
21. Vistun upplýsinga
Um leið og viðskiptavinur skilar inn prentpöntun til söluaðila verða upplýsingar um hann skráðar í viðskiptamannaskrá PDC. PDC og söluaðili senda út reikninga samkvæmt viðskiptamannaskránni. Slíkar upplýsingar munu verða vistaðar hjá PDC þótt viðskipasambandi aðila sé slitið og hefur PDC eða söluaðili leyfi til að nota þessar upplýsingar í markaðsskyni.
22. Takmörkun ábyrgðar
Hamli óviðráðanlegar orsakir (force majeure) því að söluaðili geti uppfyllt samningsskyldur sínar svo sem ef um náttúrhamfarir, löggjöf, stríð, eldsvoðar, flóð, þurrkar, rafmagnsleysi, verkföll eða annað slíkt, verður söluaðilinn ekki bótaskyldur. Segi viðskiptavinur samningi skriflega upp meðan slíkt ástand varir skal hann greiða fyrir það verk og efni sem innt hefur verið að hendi. Segi viðskiptavinur samningi upp er hann skyldugur til þess að veita verki viðtöku þegar ástandi linnir.
23. Breytingar á skilmálum
Breyta má skilmálum þessum hvenær sem er. Nýjustu útgáfa skilmálanna á hverjum tíma má nálgast á heimasíðunni www.prentun.com.
24. Lög og lögsaga
Skilmálar þessir skulu túlkaðir í samræmi við íslensk lög. Íslenskir dómstólar skulu einir hafa lögsögu í sérhverju dómsmáli milli viðskiptavinar og söluaðila sem rætur sínar á að rekja til hvaða samnings sem er sem skilmálar þessir gilda um.

