Hönnun og önnur skapandi þjónusta

Við getum ekki séð allt fyrir. Það þýðir að hugmyndavinna, textagerð, ljósmyndir, markaðsráðgjöf og grafísk hönnun er ekki innifalin í verði enda finnst okkur eðlilegast að þú ákveðir hvað þú þarft…

Hönnun

Það eru til ýmis forrit sem gera þér mögulegt að berja saman myndir, texta, lógó, fyrirsagnir og aðra grafík. Að kunna á forritið þýðir ekki endilega að þú sért góður grafískur hönnuður. Hönnun snýst um allt, allt annað en að kunna á takkana. Ætlunin er alls ekki að móðga þig en ef þú vilt virkilega líta fagmannlega út láttu þá fagfólk um að hanna umgjörðina og útlitið. Góð hönnun selur vöru. Staðreynd. Léleg hönnun getur gert meiri skaða en þig órar fyrir. Treystu okkur, við vitum um hvað við erum að tala. Við bendum þér á að verja um þriðjungi þeirrar upphæðar sem þú hefur í hönnun. Þetta er nefnilega ekki bara spurning um hversu oft þú dreifir heldur líka hvaða viðbrögð þú færð eða hversu margar pantanir!

Merkin hér fyrir neðan tákna að við bjóðum ákveðna hönnunarþjónustu fyrir ákveðið lágmarksverð. Ramminn er skýr og svo lengi sem þú missir þig ekki í hugmyndavinnu og frösum á borð við ,,ég veit hvað ég vil þegar ég sé það” mun verðið hjá okkur koma þér á óvart!

Artwork Packages

Við bjóðum mismunandi hönnunarpakka þannig að þú getir einfaldlega valið þann sem hentar þér best. Við höfum búið til lítil lógó fyrir hvern hönnunarpakka til að einfalda þetta fyrir þig. Við allar verðtöflur í listanum okkar eru þessi lógó og sömuleiðis við verðtöflur á vefnum. Sláðu á þráðinn til okkar eða sendu okkur tölvupóst – þannig tryggjum við að þú fáir þann hönnunarpakka sem þig vantar!

Handleiðsla

Ef þú ætlar að sjá um þína hönnun, mælum við með því að þú sækir þér „Stafræn verkskil“ leiðbeingar annars staðar á síðunni (Niðurhal). Við getum líka sent þér eintak í pósti. Það getur reynst talsvert flókið að gera skjal klárt til prentunar og ótrúlega margt sem getur farið úrskeiðis. Við viljum bara vera viss um að það fari ekki allt í hnút hjá þér og verkinu þínu verði á endanum hent. Ódýr „handleiðsluþjónusta“ okkar er trygging þín fyrir því að verkið þitt prentast rétt í fyrstu atrennu. Þegar þú hefur sent okkur nokkur verk unnin á okkar hátt, leyfum við þér jafnvel að gerast ,,áhættuhönnuður” – lestu alla söguna í ,,Stafræn verkskil”.

Sækja eða senda?

Þú sækir vöruna þína til Vörudreifingar efh., að Höfðabakka 7, 110 Reykjavík. Auðvitað er þér hjartanlega velkomið að sækja vöruna þína til söluaðila en þá fellur úr gildi ábyrgð okkar á afhendingartímum. Ef þú vilt að við sendum þér vöruna þá er það alveg sjálfsagt – þú bætir bara við sendingarkostnaði, sækja eða senda.

Próförk

Það er mjög mikilvægt að þú skoðir próförkina vel áður en þú samþykkir. Ef við sjáum um alla hönnunarvinnu fyrir þig þá er ein próförk innifalin í verði. Þú getur auðveldlega fengið fleiri prófarkir gegn vægu gjaldi. Próförk, hvort sem hún er á tölvutæku eða útprentuð, er til að fara yfir texta, myndir og þess háttar í síðasta sinn. Útprentuðu prófarkirnar eru prentaðar út á venjulegum laserprenturum þannig að það getur verið litamunur. Skjálitir eru ekki samanburðarhæfir við útprent, ekki frekar en jarðarber og þorskur. Það er betra að allir séu á sömu blaðsíðunni þegar kemur að litamálum!

VSK

Verð er alltaf gefið upp án virðisaukaskatts. Á reikningi er VSK færður sérstaklega. Virðisaukaskattur er 24,5% og bætist við vöruverð okkar.