Prentun hjá okkur

Öll prentun er eins, er það ekki?

Dreifimiðar frá okkur eru nákvæmlega eins og dreifimiðar frá prentaranum sem bróðir þinn þekkir. Nafnspjöldin frá litla prentaranum á horninu eru jafn góð og nafnspjöldin frá okkur, ekki satt?

Ó nei, aldeilis ekki. Nafnspjöld eru nafnspjöld en það er augljóslega alveg útilokað að bera saman epli og skjaldbökur. Hjá okkur færð þú alltaf vönduð nafnspjöld á góðu verði.

Þetta snýst um gæði, verð og væntingar

Við vitum jafn vel og þú að smáatriði geta skipt verulega miklu máli. Alveg eins og það að lítil þúfa getur velt þungu hlassi. Þess vegna prentum við hverja einustu pöntun með HDR gæðum. HDR stendur fyrir ,,high definition reproduction" en það þýðir að ljósmyndir og texti eru einstaklega skýr. Berðu saman myndirnar hér að neðan og þá veistu nákvæmlega um hvað við erum að tala.

Gæði prentunar hjá okkur eru HDR gæði

Smáatriðin skipta máli!

1x Magnification (Eða eitthvað svoleiðis.) Hver einasta pöntun hjá okkur er prentuð í HDR gæðum. Það þýðir að bæði myndir og texti eru skarpari. Skoðaðu myndirnar hérna á síðunni og þá sérðu greinilega um hvað við erum að tala! Sú sem er vinstra megin var prentuð á hefðbundinn hátt. Sú sem er hægra megin var prentuð í HDR gæðunum okkar. Sérðu muninn? Það er þetta sem við eigum við þegar við tölum um að smáatriðin geti skipt máli!

3x Magnification

Glansandi eða matt?

Það skiptir ekki máli hvort þú fílar glans eða matt - þetta er spurning hvernig þér tekst að vekja athygli viðskiptavina þinna. Stundum kemur ekkert annað til greina en að glansa vel og mikið! Svo getur það átt miklu betur við að vera með matt lúkk við önnur tækifæri. Hvort sem þú velur matt eða glansandi þá er þetta punkturinn yfir i-ið og þú getur bókað að viðskiptavinir taka eftir þessu!