Einfalt að panta
Við getum sveigt okkur og beygt á alla kanta. Erum kannski ekki beinlínis neinar fimleikastjörnur en mjög sveigjanleg! Þú hefur bara samband við okkur á þann máta sem þér finnst þægilegur. Þú getur hringt í okkur, sent okkur póst, kíkt við hjá okkur, beðið bréfberann um að koma til okkar bréfi Hér finnur þú upplýsingar um söluaðila.
Þú ákveður hvað þú vilt
Þú getur ýmist valið úr listanum eða skoðað heimasíðuna okkar, www.prentun.com. Þú hringir eða sendir okkur tölvupóst. Við hjálpum þér að fylla út pöntunareyðublað og síðan skrifar þú undir. Þú getur nálgast það hér fyrir neðan... og prentað út eitt eða fleiri stykki!
Pöntunareyðublað (PDF(Portable Document Format), 0.2MB).
Prentum um leið og greiðsla hefur borist
Þú getur greitt með debetkorti, kreditkorti eða seðlum. Einnig er hægt að greiða með símgreiðslu eða millifærslu á reikninginn okkar.
Ertu með allt á hreinu?
Ertu með prentskjölin tilbúin? Það skiptir öllu máli að þú lítir fagmannlega út. Góð hönnun selur. Miðlungs eða slöpp hönnun getur gert meiri skaða en þig órar fyrir.
Viltu fá okkar fagfólk til að hanna fyrir þig?
Já takk, hannið þetta fyrir mig!
Frábært! Við förum í þetta með þér. Allt sem við þurfum á tölvutæku er:
- Myndir í mjög góðri upplausn (mynd úr símanum þínum eða af einhverri vefsíðu gengur ekki). Lógóið þitt ef við á - í góðri upplausn líka.
- Textann og skilaboðin sem þú vilt koma á framfæri. Segðu okkur meira en minna strax í upphafi, það margborgar sig fyrir þig! Við getum líka hjálpað þér með hugmynda- og textavinnu. Láttu okkur bara vita.
Við einhendum okkur í málið og sendum þér svo próförk. Um leið og þú samþykkir próförkina þína og gengur frá greiðslumáta getum við prentað.
Nei, ég hanna eigið efni
Ekkert mál! Áður en þú byrjar þá leggjum við eindregið til að þú kynnir þér bæklinginn Stafræn verkskil. Þar getur þú séð, lið fyrir lið, hvernig á að ganga frá skjölum til okkar þannig að þau séu hæf til prentunar hjá okkur. Hvað svo? Allt um það í ,,Stafræn verkskil" bæklingnum eða heimasíðunni okkar.
Stafræn verkskil – jafnvel þótt þú sért með svarta beltið í hönnun. Við gerum hlutina aðeins öðruvísi!
Sækja pöntunina
Pöntunin þín er tilbúin á réttum tíma og þú getur sótt hana til söluaðila. Einnig er hægt að sækja til Vörudreifingar ehf., Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, til að við ábyrgjumst afhendingartíma 100%. Einfalt og árangursríkt!.

