Alltaf á virkum dögum

Alltaf á réttum tíma

Við gerum þetta eins einfalt og auðvelt og hægt er. Skoðaðu bara merkin við töflurnar. Þau eru líka við allar vörurnar í vöru- og verðlistanum okkar og tákna þann afhendingartíma sem við ábyrgjumst.

Ef þú hefur samþykkt verk fyrir klukkan 15.00 er varan þín tilbúin 3, 5, 7 eða 10 virkum dögum síðar. Þriggja daga afhendingartími virkar þannig að þú samþykkir verkið á mánudegi og sækir það til okkar á fimmtudegi. Fimm daga afhendingartími þýðir að þú samþykkir á mánudegi fyrir kl.15.00 og sækir vöruna mánudaginn þar á eftir og svo framvegis. Allir afhendingartímar hjá okkur miðast við virka daga. Ef þér liggur mikið á þá getur þú auðvitað sótt vöruna þína til Vörudreifingar ehf., Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, en þá tökum við 100% ábyrgð á afhendingartíma. Ef þú skilar inn skjölum á tölvutæku/diski verður þú að gefa okkur 24 tíma til að skoða verkið. Einfalt og árangursríkt!

Ef við klikkum?

Turnaround Badges Þú sagðir okkur að þetta væri mikilvægt. Við erum hjartanlega sammála. Þess vegna ábyrgjumst við afhendingartíma en þá sækir þú vöruna þína til Vörudreifingar ehf að Höfðabakka 7, Reykjavík. Ef við klikkum þá færð þú inneign hjá okkur. Andvirði inneignarinnar er það sama og þú pantaðir fyrir hjá okkur.


XPRESS þjónusta?

Við erum alveg til í að vinna hraðar fyrir þig og stytta afhendingartímann. Það þýðir hins vegar að við þurfum að vinna yfirvinnu, kippa af vélum fyrir þig, endurstilla græjurnar og fólkið okkar.

Xpress Við gerðum þetta líka einfalt fyrir þig. Við vinnum á tvöföldum hraða. Þú greiðir 40% hærra verð. Það kostar okkur helling að kippa þér fram fyrir röðina og sanngjarnt að þú berir kostnaðinn af því með okkur.

Svona virkar XPRESS þjónustan okkar:

Venjulegur afhendingartími XPRESS þjónusta
10 virkir dagar 5 virkir dagar
7 virkir dagar 4 virkir dagar
5 virkir dagar 3 virkir dagar
3 virkir dagar 2 virkir dagar

Farið að rjúka hressilega úr stólnum þínum?

SOS Same Day Service

SOS er samdægurs. Við getum prentað fyrir þig samdægurs ef stóllinn þinn er farinn að hitna verulega! Allar vörur sem við getum gert og græjað samdægurs fyrir þig eru merktar sérstaklega í vörulistanum. Þú samþykkir fyrir klukkan 10.00 að morgni og sækir vöruna fyrir lokun til Vörudreifingar ehf., mundu að þar lokar klukkan 16.00 alla virka daga. Bættu 100% ofan listaverð og þurrkaðu svo á þér ennið!