Um litaprentun
Fólk er 80% líklegra til að muna hvað það var að lesa og skoða ef það er í lit. Þetta er staðreynd.
Trúir þú okkur ekki?
Ja hérna! Prófaðu að fletta í gegnum smáauglýsingarnar í uppáhalds dagblaðinu þínu og athugaðu hvaða smáauglýsingar það eru sem grípa athyglina! Við erum viss um að þær auglýsingar sem vekja fyrst athygli þína eru þær sem eru í lit…við vitum auðvitað að svo er athyglisverðara myndmál við sumar smáauglýsinganna… Þú veist jafn vel og við að það hafa verið gerðar ýmsar rannsóknir á því hvernig fólk sér liti og hvernig það bregst við þeim. Litir hafa áhrif á tilfinningar okkar. Litir og litaval er orðið að vísindum og við erum sammála gæjunum í hvítu sloppunum – alveg málið. Halló. Við prentum bara í lit!
Ættir þú að vera með allt í lit?
- Vilt þú nota peninginn báðum megin?
- Vilt þú auglýsa þig með lógóið þitt í lit og með litmyndum?
- Ertu sammála því að það skipti meira máli að skilaboðin séu sterk og komist til skila en að þú sért í kasti yfir því að rauði liturinn sé ekki nákvæmlega, nákvæmlega eins á öllum 10 þúsund dreifimiðunum sem þú varst að láta prenta?
- Finnst þér gott að láta kitla á þér iljarnar?
Ef þú svaraðir einhverjum þessara spurninga játandi þá höfum við góðar fréttir! Við getum hjálpað og örugglega sparað fyrir þig, nema hvað við rukkum sérstaklega fyrir að kitla iljarnar á þér!
Þú getur valið um nokkrar leiðir þegar kemur að litaprentun. Allt er þetta spurning um þínar væntingar þegar upp er staðið. Ef þér finnst að liturinn verði að vera nákvæmlega eins á öllu er betra að þú sért með það á hreinu að þess konar prentun er dýr. Fæstir þurfa að gera svona miklar kröfur nema ef vera skyldu útgefendur listaverka- og ljósmyndabóka. Þú gætir líka ákveðið að prenta út á litaprentaranum þínum en við bendum þér á að það gæti orðið þér töluvert dýrt þegar upp er staðið og tekið óratíma frá þér sem þú gætir verið að nota í mikilvægari hluti.
Þarna komum við til sögunnar. Við bjóðum þér í kringum 90% öryggi í litanákvæmni. Það þýðir að það verða einhver frávik – það sem við í prentbransanum köllum eðlileg frávik – en við erum líka alveg með það á hreinu að þú verður mun ánægðari með reikninginn frá okkur þegar þar að kemur!
Svona virkar þetta
Þú þarft ekki að vera lærður prentari til að hafa skoðun á því hvort litur er réttur eða ekki. Hins vegar getur verið gott að vita hvernig þetta gerist, sérstaklega ef þú ert þessi forvitna týpa!
Litaprentun byggir á fjórum litum, gulum, svörtum, fagurbleikum og túrkísbláum, stundum kallaðir CMYK litir (cyan, magenta, yellow, black). Með þessum fjórum litum getum við prentað alla liti regnbogans og fleiri til!
Einfaldlega eins marga liti og þú vilt án þess að þú þurfir að velta því fyrir þér hvort þú borgir aukalega fyrir hvern umfram fjóra!
Eins margir litir og þú vilt með því að blanda saman fjórum litum á réttann hátt. Eins margar myndir og þig langar til að hafa. Eitt verð. Einfalt.

